Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

ekki gott

Þetta er náttúrulega hið versta mál, fyrir karlmann að missa manndóminn er mjög mikið mál, því eins og allir vita, held ég, þá er hann stór hluti af sjálfi hvers og eins. 

Varðandi læknamistök, þá gerast mistök hjá þeim sem og öðrum, þessi mistök eru oft alvarlegri en annarsstaðar.  Ég er þess fullviss að enginn ætlar sér að klúðra einu eða neinu, en, læknar fæðast ekki með alla kunnáttuna, þeir verða að læra og þar sem landspítalinn er háskólasjúkrahús þá eru læknar að "fæðast" þar.  Aftur á móti held ég að læknanemar séu mjög vandvirkir eins og maður er þegar maður er að tileinka sér eitthvað, þeir eru aftur á móti látnir vera á rosalega löngum vöktum.  

Ég vil nú samt ekki meina að heilbrigðiskerfið sé fullkomið, því það er það alls ekki.  Ég veit til dæmis að aldraðir fá ekki þá þjónustu sem þeim ber, það er eins og það sé bara allt í lagi að leyfa þeim að eiga sig þeir fara hvort sem er að deyja, það tekur því ekki að gera neitt.  Þetta hef ég margsinnis rekist á og er vægast sagt ekki sátt við. Þetta er náttúrulega ekki algilt en áberandi engu að síður.

Ef fólk verður fyrir læknamistökum á það náttúrulega að leita réttar síns, það er ekki spurning, og ef ég væri karlmaður og ég væri með ónýtan getnaðarlim eftir læknamistök þá mundi ég fara í mál, ekki spurning. Það versta væri að þegar maður er búinn að opinbera sig þá er bent á mann, já þetta er maðurinn sem nær honum ekki upp lengur. 


mbl.is Sakar Landspítala um mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

já bíddu við

Ef mig misminnir ekki, þá voru þessar eignir ekki seldar dýru verði. Það var jafnvel eitthvað "2007" þar á ferð. Ef ég fengi eignir fyrir slikk, gæti ég líka leigt þær ódýrt. Og hana nú !
mbl.is Keilir ódýrastur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

þetta er málið

Mikið vona ég að eitthvað verði gert, þetta er ekki beinlínis neitt grín. Nenni ekki að skrifa meira um það .
mbl.is Skuldabyrði liggur þungt á fólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kannast við þetta

Ég kannast við þetta hjá honum, maður er reiður og greiðsluvilji er að hverfa og greiðslugetan minnkar og minnkar um hver mánaðarmót.
mbl.is Greiðsluviljinn að hverfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ágætis byrjun

Þetta er sannarlega góð byrjun, loksins er einhver sem sér hvernig búið er að fara með almenning í landinu. Svo vil ég líka sjá leiðréttingu á húsnæðislánunum, sem hafa hækkað gríðarlega undanfarna mánuði, svo gríðarlega að maður þarf að harka af sér til að kíkja á í hverju það stendur núna. Upphæðirnar á því eru allavega langt frá þeim upphæðum sem ég skrifaði undir og bankinn (greiðslumat) taldi mig geta borgað af. Er ekki eitthvað að hérna ?
mbl.is Höfuðstóll lána verði lækkaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

en frábært :)

Nú get ég labbað mig niður í banka og fengið stórann hluta minna skulda niðurfelldann, vá mér léttir ótrúlega mikið því skuldirnar eru farnar að gera mér lífið fremur leitt.  Ég trúi ekki öðru en að það sama eigi við um alla aðra skuldara við landsbankann. Grin 

Lifið heil og "skuldlítil" 

Sigurbjörg 


mbl.is Gamli Landsbankinn afskrifar skuldir Magnúsar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eva Joly þú ert æði :)

Þarna er komin einn einstaklingur sem hefur bein í nefinu og þorir að tala. Hún er bara meiriháttar, segir það sem segja þarf og hefur áunnið sér virðingu og traust sem gerir það að verkum að á hana er hlustað, það er ómetanlegt fyrir okkur íslendinga að hún skuli vera að vinna fyrir okkur og vonandi hefur ríkisstjórnin vit á að hafa hana áfram á launaskrá.
mbl.is Ísland – það sem læra má af efnahagshruninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og við er að búast

Þegar það er svona áberandi í allri umræðu að lögreglan er svo fámenn að hún geti ekki sinnt öllum útköllum þá er náttúrulega við því að búast að þeir sem hneigjast til innbrota noti tækifærið. Það er reyndar með öllu óskiljanlegt að svelta svona lögregluna, veit ekki alveg hvað ráðherrann er að pæla.



mbl.is Innbrotafaraldur en lítil gæsla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sigurbjörg Kristmundsdóttir
Sigurbjörg Kristmundsdóttir
Ég hef skoðanir.

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband