það er frekar ómerkilegt finnst mér að vera að fjalla um fjármál einstaklinga í fréttunum, hvað kemur okkur þetta við eiginlega.
Það er reyndar alveg á kristaltæru af hverju verið er að fjalla um fjármál á hans vegum, hann hefur verið að tala fyrir almenning í landinu og reynt að koma einhverju viti í hausinn á þeim sem ráða hér. Því miður getur þetta fólk, ekki svarað fyrir sig, það á sér líklega enga málssvara, og þá er bara að reyna að ryðja úr vegi þeim sem ekki þegja, allavega ata þá aur. Það hefur reyndar þótt frekar ómerkilegt í siðaðra manna samfélögum, ég hélt ég byggi í einu slíku.
Björn Þorri á reyndar heiður skilinn, húrra fyrir honum að hafa þor til að verja okkur. Ef það væru fleiri með honum í þessu þá væru kannski ekki eins margar fjölskyldur á vonarvöl.
OG HANA NÚ.
140 milljóna kröfur í tvö félög Björns Þorra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.