ekki gott

Þetta er náttúrulega hið versta mál, fyrir karlmann að missa manndóminn er mjög mikið mál, því eins og allir vita, held ég, þá er hann stór hluti af sjálfi hvers og eins. 

Varðandi læknamistök, þá gerast mistök hjá þeim sem og öðrum, þessi mistök eru oft alvarlegri en annarsstaðar.  Ég er þess fullviss að enginn ætlar sér að klúðra einu eða neinu, en, læknar fæðast ekki með alla kunnáttuna, þeir verða að læra og þar sem landspítalinn er háskólasjúkrahús þá eru læknar að "fæðast" þar.  Aftur á móti held ég að læknanemar séu mjög vandvirkir eins og maður er þegar maður er að tileinka sér eitthvað, þeir eru aftur á móti látnir vera á rosalega löngum vöktum.  

Ég vil nú samt ekki meina að heilbrigðiskerfið sé fullkomið, því það er það alls ekki.  Ég veit til dæmis að aldraðir fá ekki þá þjónustu sem þeim ber, það er eins og það sé bara allt í lagi að leyfa þeim að eiga sig þeir fara hvort sem er að deyja, það tekur því ekki að gera neitt.  Þetta hef ég margsinnis rekist á og er vægast sagt ekki sátt við. Þetta er náttúrulega ekki algilt en áberandi engu að síður.

Ef fólk verður fyrir læknamistökum á það náttúrulega að leita réttar síns, það er ekki spurning, og ef ég væri karlmaður og ég væri með ónýtan getnaðarlim eftir læknamistök þá mundi ég fara í mál, ekki spurning. Það versta væri að þegar maður er búinn að opinbera sig þá er bent á mann, já þetta er maðurinn sem nær honum ekki upp lengur. 


mbl.is Sakar Landspítala um mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigurbjörg Kristmundsdóttir
Sigurbjörg Kristmundsdóttir
Ég hef skoðanir.

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband