Færsluflokkur: Bloggar
á hvaða lyfjum ertu kallinn minn ?? þetta eru allavega ofskynjunarlyf, bráður heldur þú að þú getir flogið.
Hvaða andskotans árangur er þetta, jú að styrkja stöðu bankanna þar er satt, en hver fær að gjalda.
Mikið djöfull er ég orðin þreytt á þessu.
Mikill árangur hefur náðst | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.9.2010 | 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég mundi alveg vilja taka þátt en því miður er þetta óhentugur tími fyrir mig, til að liggja úti. Það er ótvírætt komin tími á meiri mótmæli, og ég er til, en ekki á þessum tíma :)
Hvar finn ég þennan hóp á facebook ?
550 manns skráð sig til mótmæla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.9.2010 | 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
það eina sem mig langar að vita er hvað sjálfstæðisflokkurinn hefur hugsað sér að gera fyrir vonlitlu heimilin. Það er stóra málið.
Já og hvað er málið með alþingi, að draga einn ráðherra fyrir landsdóm en ekki allann hópinn, bull er þetta. Allir eða enginn það er málið.
Vill boða til kosninga strax | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 29.9.2010 | 18:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
eg hef tvisvar lent í hálfgerðu rifrildi í landsbankanum á Akranesi útaf því að ég var krafin um kennitölu þegar ég var að borga reikninga með peningum. Ég sagði að þeim kæm þaði andskotann ekki við en þær sem afgreiddu mig voru á öðru máli og sögðu að það væri nauðsynlegt að það kæmi fram hver hefði greitt þessa reikninga,,,, já einmitt. Þannig að annað hvort varð ég að gefa upp kennitöluna mína og fá að borga reikningana eða ég hefði ekki fengið að borga þá. Hrokafulla pakk ;)
Óheimilt að krefjast kennitölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 18.9.2010 | 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gættu ekki að reglu um meðalhóf | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 3.9.2010 | 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er það ekki prestastéttin sem er að reyna að innprenta hjá þjóðinni alls konar góða siði, eins og til dæmis að bera ekki ljúgvitni gegn náunga þínum, (kirkjan.is/kirkjustarf/?fermingarstarf/boðorðin). Svo við tölum nú ekki um öll hin boðorðin. Allavega þá hafa prestarnir sjálfir gleymt einhverjum þeirra. Allavega eru þeir ekki að fara eftir þeim sem skildi.
Ég er sammála Sigrúnu Pálinu, það er um að gera fyrir hana að svara fyrir sig, kirkjunnar menn eiga ekki að komast upp með svona lagað frekar en aðrir. Það er eins og þeir haldi og einhver hluti þjóðarinn líka að þeir séu hafnir yfir lög og rétt.
Ég er líka hissa á því að ef þeir hafi trúað Sigrúnu Palínu á sínum tíma að þeir skildu hafa tekið afstöðu með biskup og gegn henni. Það er í hæsta máta ótrúlegt. Ég held að þessir kallar séu heilaþvegnir af einvhers konar Guðstrú, eða er það biskupsvaldi ég veit það ekki en þeir eru allavega ekki að gera kirkjunni neinn greiða með svona framkomu. Og svo sannarlega engum öðrum, tja nema dauðum kynferðisglæpamanni og barnaniðingi... Hver vill annars gera svoleiðis fólki greiða ? Hvað liggur þar að baki ? Mér er spurn.
Hann er að reyna að hvítþvo sjálfan sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.8.2010 | 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Því setur Sigurður Einarsson sig á háann hest, jú af því að hann er þannig en,,, af hverju tala fréttamenn við hann eins og hann sé á sínum háa hesti ?
Að maðurinn skuli fara fram á að embætti sérstaks saksóknara verði rannsakað er í besta falli fyndið.
Ætli hann sé á Kóki maðurinn, kannski ekki ólíklegt.
Allavega er hann ekki í lagi.
Vill rannsókn á vinnubrögðum sérstaks saksóknara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 28.8.2010 | 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
þetta er nú aldeilis flott hjá biskupi vorum, að gera lítið úr máli Guðrúnar Ebbu, hvað er málið með þessa biskupa ?? ætli það séu margar dætur sem ásaka föður sinn um svona lagað "af því bara" nei ég bara spyr ?
Mér finnst þetta hjá Karli ekki alveg eins og ég hefði ætlað þroskuðum kirkjunnar manni...
Kynferðisbrot þögguð niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 21.8.2010 | 01:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Guðrún Ebba er hugrökk kona, eiginlega ótrúlega dugleg. Það mundu ekki allir opinbera föður sinn svona, og faðir hennar var ekki neinn jón því hann var "biskup" Jón. Ömurlegt þetta mál, ömurlegt að við höfum haft barnaníðing fyrir biskup. Ég vil helst ekki tjá mig meira um þetta mál á opinberum vettvangi því hann á afkomendur sem gætu lesið þetta og ég hef ekki áhuga á að mín skrifa komi niður á þeim sem síst skildi.
en húrra fyrir Guðrúnu Ebbu.
Lýsti alvarlegum brotum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 20.8.2010 | 08:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
það vantar ekki hvað Steingrímur Joð er hugmyndaríkur, það eina sem mannfj******* dettur í hug er að hækka skatta og hækka skatta. Það fer að verða algjörlega ólíft hér á þessu skeri, er maðurinn ekki að gera sér grein fyrir því ? Eða lífir hann kannski algjörlega í eigin heimi ? Allavega er hann ekki í takt við almenning í landinu, fyrst er búið að pína fólk til að borga af stökkbreyttum lánum, jafnvel þó stjórnvöld hafi vitað að þau voru ólögleg, svo hafa verðtryggðu lánin stökkbreyst líka og eitthvað þarf að borga af þeim, svo er nú eins og matvara og önnur nauðsynjavara hafii hækkað eitthvað líka. Fólk berst í bökkum og ég hélt kannski að þessir háu herrar eins og Steingrímur viti það, ,,,, en nei nei hækkum bara skattana.
Það þarf að koma þessari stjórn burt, ráðherrar eru hraðlygnir, óheiðarlegir og þeir hljóta líka að vera algjörir heiglar, því ekki þora þeir að taka ákvarðanir sem henta ekki fjármagnseigendum og Alþjóðagjaldeyririssjóðnum, sem er þekktur fyrir að leggja þjóðir í rúst en það hlýtur að vera eftirsóknarvert eða hvað.
Ætla að hækka skatta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 14.8.2010 | 09:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)